Það er ekki auðvelt að lýsa Kína í stuttu máli. Kína, sem er eitt stærsta ríki heims og nær yfir fimm tímabelti, er land ótrúlegra andstæðna, mannlífs, menningar og náttúrufegurðar. Þar má finna nútímalegar stórborgir og sveitasælu fortíðarinnar. Kínversk matargerð er fyrir löngu heimsþekkt og þar er úrvalið meira en margan grunar. Allt þetta og meira til stendur ferðalöngum til boða í 12 daga ferð Úrvals Útsýnar til Kína dagana 29. mars til 9. apríl.