Albönsk leikkona, Anila Bisha, hefur kært albanska ríkið fyrir stuld á persónueinkennum sínum og að nota þau til að búa til svokallaðan gervigreindarráðherra. TVP World greinir frá. Edi Rama, forsætisráðherra Albaníu, kynnti landsmönnum gervigreindarspjallmennið Diellu í september. Diellu, sem er í hefðbundnum albönskum klæðnaði, er ætlað að hjálpa borgurum og fyrirtækjum að rata um vefsíður hins opinbera og draga úr skriffinnsku. Persónueinkenni Bisha, andlit hennar og rödd, voru notuð til að búa spjallmennið Diellu til. Bisha segist aldrei hafa gefið leyfi fyrir því að persóna hennar yrði notuð í hlutverki ráðherra. Spjallmennið ávarpaði albanska þingið Bisha segist hafa skrifað undir samning sem heimilar albönsku ríkisstjórninni að nota persónueinkenni hennar til loka ársins 2025 og þá aðeins sem stafrænan aðstoðarmann á opinberu vefsvæði sem veitir borgurum netþjónustu. Andmæli Bisha við notkun á einkennum sínum færðust í aukana eftir að tölvugerð útgáfa af henni ávarpaði albanska þingið í september í myndbandi sem stjórnvöld bjuggu til. Í myndskeiðinu birtist gervigreindarpersóna með útlit Bisha sem sagðist ekki komin til að skipta öðru fólki út. Sóttu um einkarétt á útliti Bisha Leikkonan segir að stofnunin sem bjó Diellu til hafi sótt um einkarétt á útliti hennar og rödd án þess að láta hana vita af því. Bisha segir að það ógna lífsviðurværi hennar. Albanska leikkonan lagði fram kæru hjá stjórnsýsludómstólum fyrr í vikunni. Hún krefst þess að hætt verði að nota útlit hennar. Þá segist hún hafa leitað til embættismanna til að leysa málið í góðu en ekki fengið svar. Manjola Hasa, talsmaður albönsku ríkisstjórnarinnar, segir kæruna þvælu og yfirvöld hlakki til að leysa málið fyrir dómstólum.