Aron í leik með FH á síðasta tímabili.RÚV / Mummi Lú Aron Pálmarsson var á hliðarlínunni í fyrsta leik sínum í þjálfarateymi FH í efstu deild karla í handbolta í kvöld. FH vann endurkomusigur á Selfossi. Liðið vann lokakaflann með fimm mörkum og niðurstaðan var þriggja marka sigur, 33-30. Selfyssingar höfðu forystu, 27-25, þegar skammt var eftir en þá gáfu FH-ingar í. FH er í öðru sæti deildarinnar en Selfoss í áttunda sæti.