Ekki innritað í fjóra leik­skóla í Reykja­vík í haust

Ekki verður innritað í fjóra leikskóla í Reykjavík á þessu ári vegna framkvæmda. Leikskólarnir eru Hagaborg, Sæborg, Borg og Vinagerði. Foreldrar sem hafa valið leikskólana í umsókn eru hvött til að breyta umsókn. Börn sem eru þegar skráð í leikskólann verða flutt annað.