Kínverska félagið Bluestar hefur selt allan eignarhlut sinn í norska félaginu Elkem AS, sem rekur meðal annars járnblendisverksmiðju á Grundartanga. Kaupverðið er allt greitt með einni af þremur deildum Elkem og enginn peningur fer á milli aðila. Breytingarnar hafa engin áhrif á rekstur Elkem á Grundartanga.