Long vonast eftir að fá annað tækifæri hjá Íslendingum

William Long, sendiherraefni Donalds Trumps Bandaríkjaforseta á Íslandi, baðst afsökunar á ummælum sínum um að Ísland yrði 52. ríki Bandaríkjanna þegar hann kom fyrir öldungadeild bandaríska þingsins í gær. Long flutti yfirlýsingu um tilnefningu sína sem sendiherra og greindi frá áherslum sínum, ef til þess kæmi að hann yrði sendiherra. Öldungadeildarþingmaðurinn og Demókratinn Jeanne Shaheen spurði Long út í ummælin og áréttaði að svona tegund af gríni væri ekki viðeigandi hjá þeim sem kæmi til greina sem sendiherra Bandaríkjanna. Grín sem þetta þætti öðrum ekki endilega fyndið og til eyrna hefði borist frá Íslandi að fólk hefði áhyggjur af því að hann hefði látið þessi ummæli falla sem tilnefndur sendiherra. Long vafðist tunga um tönn í fyrstu en sagði svo: „Þetta var þriggja manna tal. Einhver sagði eitthvað og annar sagði annað, og já, ég bætti þessu við með 52. ríkið sem var algerlega óviðeigandi en það var ekki eitthvað sem ég sagði sem alvarleg yfirlýsing. Þegar svo Arctic News hringdi í mig daginn eftir og spurði mig út í þetta sagði ég að það hefði engin alvara legið að baki og ég baðst afsökunar á því ef þetta hefði móðgað einhvern og það er allt sem ég hef um þetta að segja.“ Hann bætti við að hann vonaði að Íslendingar veittu honum annað tækifæri. Long er fyrrverandi þingmaður Repúblikana fyrir hönd Missouri og starfaði áður sem uppboðshaldari. Um tíma var hann ríkisskattstjóri Bandaríkjanna en forsetinn rak hann eftir aðeins tvo mánuði í starfi og tilnefndi hann samdægurs sem sendiherra á Íslandi. Tilnefning hans hefur ekki verið staðfest, það er í höndum öldungadeildar Bandaríkjaþings.