Fimm ferskir rafpoppsmellir á föstudegi

Fred again.. & Young Thug – scared Í lok janúar sendu enski framleiðandinn og plötusnúðurinn Fred again.. og bandaríski rapparinn Young Thug frá sér lagið Scared, sem er partur af verkefni Fredda USB002. Eins og við er að búast er þetta ljómandi bræðingur af hipp-hoppi og raftónlist frá þeim félögum enda vanir menn á ferð. Calvin Harris, Kasabian – Release The Pressure Í síðustu viku birtist afrakstur af samstarfi framleiðandans og plötusnúðarins Calvins Harris og rokkaranna í Kasabian. Lagið er upphitun fyrir nýja plötu Kasabians, Act lll, sem kemur út í vor og hefur fengið misgóðar undirtektir frá tónlistarunnendum eins og vaninn er þegar þessum tveimur stefnum er blandað saman í einn graut. Robyn – Talk To Me Robyn hefur verið í fararbroddi í sænsku synþapoppi á undanförnum áratugum og er mætt aftur eftir gott hlé með plötuna Sexistential. Talk To Me er eitt af þremur lögum sem eru komin út af plötunni og líklega það aðgengilegasta enda unnið með smellamaskínunni Max Martin. Sombr – Homewrecker Shane Boose eða Sombr átti risalög í fyrra og byrjar nýja árið með bombunni Homewrecker. Kappinn er nýbúinn að taka við Grammy-verðlaunum sem besti nýliðinn og það lítur út fyrir að hann stefni á miklu meira en fimmtán mínútna frægð í sviðsljósinu góða. MIKA – Immortal Love Sorglegt danspopp hefur reglulega verið viðloðandi vinsældalista síðan Robyn dansaði bitur við sjálfa sig á sínum tíma. Enski Líbaninn MIKA veit þetta og rær á þessi gjöfulu mið í lagi sínu Immortal Love sem kom út í lok janúar. Lagalisti Fimmunnar