Dorrit segir að sér hafi fundist Epstein ógeðfelldur

Dorrit Moussaieff segist hafa fundist Jeffrey Epstein ógeðfelldur. Hún hafi verið vinkona Ghislaine Maxwell, samverkakonu hans og auðmanns sem útvegaði honum fé. Forsetafrúin fyrrverandi hefur útskýrt ástæður þess að nafn hennar er að finna í Epstein-skjölunum. Dorrit þvertekur fyrir að hafa nokkru sinni heimsótt eyju Epsteins, Little Saint James, í Karíbahafi. Hún hafi haldið sig eins fjarri og hægt væri. Mannlíf bað Dorrit Moussaieff að útskýra skriflega hví nafn hennar er að finna í tveimur tölvupóstum í þeim milljónum skjala sem afhjúpuð hafa verið. Hún hafi alls ekki veitt Epstein eða vinkonu sinni Maxwell ráðgjöf eða upplýsingar um málefni íslenska ríkisins. Hún hafi vitað af sambandi Maxwell og Epsteins og segir sér hafa verið mjög brugðið þegar hún var dæmd fyrir mansal og samsæri um að útvega honum allt niður í 14 ára stúlkur. Dorrit kannast ekki heldur við að hafa stungið upp á við Maxwell að hún aðstoðaði Leon Black, samverkamann Epsteins, við að finna stjórnarmenn í félög. Það kemur fram í pósti sem Black framsendi til Epsteins. Ég get ekki útilokað það 100% en ég sé nákvæmlega enga ástæðu fyrir því að ég hefði átt að nefna hann, sérstaklega í þessu samhengi. Herra Black er mikill listasafnari. Ég gæti hafa minnst á list hans en örugglega ekki viðskipti hans. Og ég skil satt best að segja ekki hvers vegna ég hefði nefnt þetta við Ghislaine. Fyrirtæki hans er skráð á markað. Síðasta manneskjan sem þyrfti að gefa þeim ráð er Ghislaine eða ég. Scott Borgerson, eiginmaður Maxwell, var einn þeirra sem stofnuðu sem stofnuðu Arctic Circle ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni fyrrverandi forseta. Maxwell sjálf hefur minnst tvisvar flutt þar erindi. Dorrit kveðst hafa þekkt Black og hinn sendandann, nýaldargúruinn Deepak Chopra, áratugum saman og hafa búið í sama litla fjölbýlishúsinu og Jeffrey Epstein í Lundúnum fyrir fjörutíu árum. Það gæti skýrt hví hann var með símanúmer hennar skráð. Hún hafi einu sinni beðið hann að liðsinna sér með farangur í lyftu. Moussaieff hafi hitt Epstein seinast ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni í samkvæmi fyrir aldarfjórðungi og látið sér nægja að heilsa honum og kveðja. Þau hafi umsvifalaust yfirgefið teitið. Ekkert í skjölunum bendir til nokkurra brota forsetahjónanna fyrrverandi. Dorrit furðaði sig á áhuga blaðamanna Mannlífs á Epstein-skjölunum. „Af hverju hafið þið öll svona mikinn áhuga á þessu? Ég skil það ekki. Sennilega er ekkert annað í gangi, segðu mér hvað annað mikilvægt er í gangi,“ sagði Dorrit við blaðamann. „Mér líkaði einfaldlega aldrei við Jeffrey og ég vildi ekki vera í félagsskap hans. Auðvitað gat ég ekki forðast að rekast á hann á leið inn og út úr byggingunni okkar.“ Árið 2019 sagði Dorrit „ekkert furðulegt við hann“ og ítrekar það í svari til Mannlífs, henni hafi bara ekki líkað við hann, þótt hann „slepjulegur“, eins og hún orðaði það.