Félagar í Viðreisn í Múlaþingi ákváðu í vikunni að bjóða fram undir eigin nafni í sveitarstjórnarkosningum í vor. Þetta verður í fyrsta skipti sem listi flokksins verður í framboði í sveitarfélaginu. Stillt verður upp á lista og var þriggja manna uppstillingarnefnd skipuð á félagsfundi. Brimnesviti í Seyðisfirði í Múlaþingi.Mynd af austurland.is / Austurland.is