Lögmaður hefur fyrir hönd nokkurra einstaklinga, sem í æsku voru vistaðir á Vöggustofunni Hlíðarenda og/eða Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins í Reykjavík í lengri eða skemmri tíma, sent Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra bréf þar sem hún er hvött til að eiga frumkvæði að því að réttur verði hlutur þeirra sem vistaðir voru á vöggustofunum með sanngirnisbótum úr ríkissjóði.