Al­gjör ó­reiða á vef KSÍ: „Skil pirringinn en þetta mun allt koma“

Eiður Smári Guðjohnsen er markahæsti landsliðsmaður Íslands, ekki Gylfi Þór Sigurðsson, og fimm leikir hafa verið teknir af leikjamethafanum Söru Björk Gunnarsdóttur. Þannig er alla vega staðan á nýjum vef Knattspyrnusambands Íslands. Framkvæmdastjóri sambandsins biður fólk að sýna biðlund.