Undanfarin ár höfum við í Framsóknarflokknum þurft að horfast í augu við að ákveðin lægð hefur gengið yfir starf okkar. Umræðan hefur víða orðið óskýrari og margir flokksmenn upplifað að stefna okkar og framtíðarsýn hafi hvorki verið nægilega skýr né sannfærandi.