Lögregla hefur nú umsjón með vettvangi bruna sem átti sér stað við Elliðavatn í morgun. Tilkynning barst um eld í húsnæði klukkan 7.20 og var slökkvilið kallað út. Þar sem um er að ræða vatnsverndarsvæði og húsið var alelda þegar komið var að, var bruninn látinn klára sig undir eftirliti.