Alva Capital kaupir Valhöll, höfuðstöðvar Sjálfstæðisflokksins við Háaleitisbraut í Reykjavík, af flokknum. Fyrirtækið og flokkurinn hafa undirritað kaupsamning um fasteignina. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið til húsa í Valhöll síðan 1975 þegar húsið var reist af flokksmönnum sérstaklega til að hýsa starfsemi flokksins. Þeirri sögu lýkur um mitt sumar þegar Alva Capital fær húsið afhent. Forsvarsmenn Alva Capital segjast ætla að þróa nýja starfsemi í húsinu og breyta hlutverki þess þannig að byggingin verði lifandi hluti af nærumhverfi sínu. Miðstjórn og húsnæðisnefnd Sjálfstæðisflokksins ákváðu að selja húsið þar sem rekstur þess var orðinn dýr og ljóst að ráðast þyrfti í umfangsmiklar og dýrar endurbætur.