Einn fluttur á spítala eftir árekstur á Suðurlandsvegi

Einn var fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur eftir árekstur á Suðurlandsvegi rétt austan við Þrengslavegamót á tólfta tímanum í dag. Við fyrstu sýn virðast meiðslin ekki vera alvarleg. Tveir bílar lentu í árekstrinum. Flutningabíll rakst aftan á fólksbíl. Umferð um veginn í átt til Reykjavíkur var lokað klukkan hálf tólf í dag en þegar klukkuna vantaði stundarfjórðung í tólf stóð til að byrja að hleypa umferð í gegn í hollum á næstu mínútum. Sjúkrabíll. Safnmynd.RÚV / Kristófer Óli Birkisson