Fjöl­margir Ís­lendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi

Ómar R. Valdimarsson hæstaréttarlögmaður segist nokkrum sinnum hafa verið með mál þar sem fólk hafi leitað til hans með slíkan vanda; það var á löglegum ADHD-lyfjum en svipt bílprófi vegna amfetamínneyslu. Ástæðan: Það var ekki með læknisvottorð. Ómar segir stífa dómaframkvæmd vegna mála af þessu tagi.