Dagur í 70. sæti – Enn vinnur Klæbo

10 kílómetra skíðagöngu karla á Vetrarólympíuleikunum lauk nú rétt fyrir hádegi. Dagur Benediktsson var á meðal keppenda og endaði í 70. sæti. Dagur byrjaði frekar hægt og var í 81. sæti að 1,8 km loknum. Hann var þó búinn að vinna sig upp í 70. sæti strax á næsta tímatökusvæði við 3,7 km. Hann komst upp í 69. sæti á næsta svæði en var svo í 70. það sem eftir var af keppni og lauk henni einnig þar. Dagur keppir í sinni síðustu grein, 50 km göngu, laugardaginn 21. febrúar. Sér á báti Norðmaðurinn Johannes Høsflot Klæbo, sem var þegar búinn að vinna skipti- og sprettgönguna, virtist ekki eiga sinn allra besta dag því landi hans Einar Hedegart var á undan honum í öllum millitímum, þar á meðal þegar einungis kílómetri var í mark. Klæbo átti hins vegar mun betri endasprett og vann enn ein gullverðlaunin sín á Ólympíuleikunum, þau þriðju í ár og þau áttundu í heildina. Hann jafnaði þar með Bjørn Dæhlie og Marit Bjørgen, bæði frá Noregi, að fjölda gullverðlauna og hann getur enn unnið þrenn til viðbótar á þessum leikum. Frakkinn Mathis Desloges átti sömuleiðis betri endasprett en Hedegart og fékk silfur, sá norski þurfti að láta sér bronsið duga.