Á leið til Íslands eftir langa sjúkrahúslegu í Suður-Afríku

Kjartan Guðmundsson, sem legið hefur þungt haldinn á spítala í Suður-Afríku eftir umferðarslys þar í landi, er á leiðinni heim til Íslands. Þetta staðfestir Agnar Jónsson, vinur Kjartans. „Hann er lagður af stað í sjúkraflug,“ segir Agnar. „Þetta eru mjög góðar fréttir.“ Gangi allt samkvæmt áætlun komi Kjartan til landsins í fyrramálið. „Þetta er 23 tíma ferðalag með fjórum til fimm stoppum á leiðinni,“ segir hann. Hann segir Kjartan vera á hægum batavegi en hann sé ennþá barkaþræddur út af öndunarvél. „Hann er enn mikið slasaður og nýrun og lifrin eru ekki með góða virkni,“ segir Agnar. Eftir komu hingað til lands verður Kjartan fluttur á Landspítalann og verður ákvörðun um framhaldið tekin síðar. Agnar segir að það séu sjúkratryggingar Kjartans sem greiða fyrir flutninginn. Ríkið hafi ekki haft aðkomu. Ástæðan fyrir því að Kjartan verði fluttur sé sú að hann sé orðinn nægilega heilsuhraustur til þess að hægt sé að flytja hann heim svo hann geti byrjað sína endurhæfingu. Kjartan er faðir eins þriggja drengja sem fóru í fíknimeðferð hjá stofnuninni Healing Wings í Suður-Afríku. Þrír íslenskir drengir hafa verið í meðferð þar. Fjölskylda eins þeirra hélt utan til að vera með honum yfir jólin á síðasta ári. Þegar fjölskyldan var nýkomin til Suður-Afríku lentu þau í alvarlegu bílslysi, þar sem Kjartan slasaðist alvarlega og móðir hans og dóttir létust.