Danir aumir eftir snjómokstur

Mikið fannfergi hefur verið í Danmörku undanfarið og ekki er útlit fyrir að vetrarveðrinu ljúki alveg á næstunni. Þetta óvenjulega árferði hefur reynt mismikið á mjóbök Dana í snjómokstrinum. Tryggingafélaginu Gjensdige hafa borist óvenju margar fyrirspurnir vegna meiðsla af völdum snjómoksturs og sjúkraþjálfarar tryggingafélagsins vinna baki brotnu við að meðhöndla eymsli í baki, mjóbaki og öxlum vegna snjómoksturs og hálku. Í viðtali við Danska ríkisútvarpið segir Behnam Liaghat, lektor í íþrótta- og líftækni við Syddansk-háskólann: „Mörg okkar eru einfaldlega ekki vön líkamlegri vinnu eins og að moka snjó. Margir finna fyrir skyndilegu álagi á líkamann vegna þess að þeir beita sér ekki rétt við snjómoksturinn, sem getur leitt til óþæginda í baki, öxlum og fótleggjum“ segir Liaghat. Rétt eins Íslendingum var kenndur mörggæsagangur af sérfræðingi í sjónvarpsfréttum RÚV um árið, þá stóð ekki á svörum þegar Liaghat var beðinn um góð ráð fyrir Dani sem eru á kafi í snjó. Hitið upp fyrir snjómoksturinn, byrjið smátt og takið pásur inn á milli, haldið fast um skófluna og notaðu allan líkamann þegar þú mokar, og gættu þess að setja ekki of mikinn snjó í skófluna í hvert sinn, segir í ráðleggingum lektorsins. Ef fólk fer of geyst fer að finna til verkja þá er mikilvægt að örvænta ekki og leggjast undir sæng. Hreyfðu þig eins og þú getur og gerðu það sem þú myndir venjulega gera, segir lektorinn að lokum.