Bjarki Heiðar Bjarnson lögmaður segir fjölda karla og kvenna sem voru á vistheimilum á barnsaldri hafa leitað aðstoðar við að sækja sanngirnisbætur. Hann segir mjög tekið að fjölga í hópnum. Bjarki segir að við hóp þeirra 22 sem voru vistuð í Bakkakoti hafi bæst fimmtán sem voru á ýmsum öðrum vistheimilum. Bjarki vill ekki gefa upp á hvaða heimilum fólkið var. Það hafi sagt hræðilegar sögur. Hópurinn telur nú 37 manns. Bjarki segir að fólkið hafi leitað til lögmanna um að ná samkomulagi við ríkið eftir að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra boðaði frumvarp um sanngirnisbætur í haust til þeirra sem biðu tjón á vistheimilum. Með því hafi opnast leið til að sækja bætur. Ekki sé fyrirhugað að stefna ríkinu. Unnið sé með stjórnvöldum að því að útvega sálfræðiaðstoð og áfallahjálp. „Það er enn þá að bætast í þennan hóp og er raunverulega enn að fjölga.“ Það sé þó talsverður hópur. Bjarki segir útfærslur ekki hafa verið ákveðnar en mikil og góð samskipti séu milli lögmanna fólksins og stjórnvalda. Ítarlega hafi verið skoðað hvort sækja megi á þau sem brotin frömdu en samkvæmt lögum frá 2007 fyrnast kynferðisbrot gegn börnum aldrei. „Þegar þessi meintu brot voru framin voru reglurnar því miður þannig að slík brot fyrnast á ákveðnum tíma.“