Máltækni fyrirtækið Bara tala hefur hlotið 25 milljóna króna styrk frá mennta- og barnamálaráðuneytinu til umfangsmikils þróunarverkefnis sem miðar að því að efla íslenskunám nemenda með annað móðurmál en íslensku í framhaldsskólum landsins. Þróunarverkefnið verður innleitt í alla framhaldsskóla landsins næsta haust.