„Ég var næstum drepin fyrir að birta þetta“

„Sökum umræðunnar um Haframjólk og fréttarinnar á mbl.is þar sem fyrirsögnin var: Haframjólk er ekki mjólk, langaði mig að birta aftur pistilinn minn sem ég birti fyrst þann 1. desember árið 2023. Ég var næstum drepin fyrir það að birta þessa grein á sínum tíma. Við skulum vona að tímarnir hafi breyst,“ segir Elísabet Reynisdóttir næringarfræðingur, alla jafna kölluð Beta Reynis, í nýjum pistli.