„Fyrirfram var ég búinn að ákveða að fara prógresíft inn í gönguna og fannst það alveg ganga eftir. Gekk mjög vel fyrsta og annan hringinn. Svo var ég náttúrlega bara orðinn þreyttur eins og allir aðrir á þriðja hring, held ég hafi tapað svolítið þar.“ „Ég fékk oft að heyra að ég væri með í keppninni um mörg sæti; 10 sekúndur, 10 sæti, langt fram eftir göngunni. Það var alveg hvetjandi. En brautin var alveg ótrúlega erfið og það skilur á milli á síðasta hringnum, á milli þessara bestu og svo næstu á eftir en ég er bara sáttur með hvernig gekk og hvernig líkaminn var.“ „Líkaminn var miklu betri núna heldur en í skiptigöngunni. Heitt aftur en ég höndlaði það betur í dag. Þannig að ég fer bara sáttur frá þessari göngu.“ Dagur Benediktsson var heilt yfir sáttur með göngu sína 10 km skíðagöngu karla á Vetrarólympíuleikunum í morgun. Dagur endaði í 69. sæti í erfiðum aðstæðum. Hitinn hægir á öllu Eins og Dagur sagði var frekar heitt í Cortina þar sem keppt er í skíðagöngu og hiti hefur ekki bara áhrif á keppendur heldur einnig brautina. „Það hægist á brautinni eftir því sem líður á þannig að því seinna sem þú startar í svona sól því erfiðara verður. Hægara rennsli og hiti fer misvel og -illa í keppendur. Frekar illa í mig allavega. Maður hagnast á því að fá að starta snemma þegar það er svona hiti.“ Greni gerir leiðina greinilegri Í 10 km göngu kvenna í gær fór Kristrún Guðnadóttir vitlausa leið og var í kjölfarið dæmd úr keppni. Dagur segist hafa verið meðvitaður um að hann mætti ekki gera slíkt hið sama: „Þetta var kannski bara fín áminning, að þetta hafi gerst í gær þá passaði ég mig extra vel. Ég held að það hafi verið gerðar smá áherslubreytingar á brautinni, það var sett grenitré til að skilja á milli. Þannig að það var auðveldara að fara rétt í dag heldur en í gær.“