Lagið er ástarlag í grunninn, að sögn Rebekku, og fjallar um það að vera þakklátur fyrir það sem maður hefur og að lifa í núinu, „að missa sig ekki í draumórum, óskhyggju eða festast í hugsunum um það sem þarf að bæta.” Lagið skiptir um takt í miðjum klíðum og hugsunin á bak við það er færslan frá draumheimum yfir í raunheima. „Að þú dettir á andlitið yfir í raunveruleikann. Við erum að lifa svo hratt núorðið og því mikilvægt að minna sig á vera þakklátur fyrir það sem maður hefur og vera í núinu.” Rebekka verður með tónleika í Djúpinu 26. febrúar með Andrési Þór Gunnlaugssyni þar sem lagið mun hljóma ásamt fleirum af komandi plötu.