Elkem selur hluta starfsemi sinnar til Kínverja

Norska fyrirtækið Elkem, sem á kísilmálmverksmiðjuna á Grundartanga, tilkynnti í dag að það hefði náð samkomulagi um sölu á meirihluta í silíkon-rekstrareiningum sínum við stærsta hluthafann, kínverska fyrirtækið Bluestar. Forstjórinn segir breytingarnar ekki hafa bein áhrif á starfsemina. Engin bein áhrif á starfsemina á Grundartanga Stafsemi Elkem á Íslandi hefur verið í þremur megindeildum, silicones, silicon products og carbon solutions. Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem á Íslandi segir að silicones færist út úr Elkem og yfir til Bluestar, félags í eigu Sinochem holding sem kínverska ríkið á. „Og með því hverfur eignarhaldið á kínverska eignarhlutnum út frá Elkem. Það kjarnar það sem er að gerast.“ Og hvaða þýðingu hefur þetta? „Í rauninni er tilgangurinn með þessu að kjarna starfsemi Elkem og við erum bara að skapa tækifæri fyrir báða anga. Eftir langt og farsælt samstarf þá skilja leiðir hjá þessum ólíku ögum fyrirtækisins. “ Breytingin snerti starfsemina á Grundartanga ekki með beinum hætti. Norskir kjölfestufjárfestar munu nú eiga meirihlutann í Elkem. „Við tökum fagnandi á móti þessari breytingu á meðan að við kveðjum þennan stóra hluta af okkur með söknuði. Það er stór hópur af vinnufélögum sem er núna að fara undir annan hatt,“ segir Álfheiður.