Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir að svo virðist sem misskilnings hafi gætt í umræðu um frumvarp Flokks fólksins er varðar tengingu almannatrygginga við launavísitölu. Málið hefur sætt mikilli gagnrýni en Ragnar vill meina að sú gagnrýni sé að miklu leyti byggð á misskilningi. Þegar sé sleginn varnagli í frumvarpinu sem komi í veg fyrir hinn svokallaða „tvöfalda lás“ sem hefur sætt gagnrýni.