Karlotta gefur út lagið Koddaver

Nýjasta lag tónlistarkonunnar Karlottu heitir Koddaver og er þriðja smáskífan af væntanlegri plötu. Karlotta segir að lagið sé um það að vera búin að gefa of mikið af sér og fá ekkert til baka, „að því stigi að maður er orðinn rosalega tilfiningalega lokaður og eiginlega bara kaldur. Lagið Koddaver er eins konar vendipunktur í söguþræðinum á plötunni og er augnablik þar sem uppgötvun á sér stað um það hvers hversu langt niður þú ert komin tilfinningalega." Tónlistarmyndband við Koddaver kemur út á Valentínusardaginn. Það var tekið upp í Berlín þar sem Karlotta stundar nám í laga- og taktsmíðum.