Loka fyrir WhatsApp og þrýsta á fólk að fá sér ríkisapp

Stjórnvöld í Rússlandi hafa lokað fyrir aðgang að samskiptaforritinu WhatsApp og sakað fyrirtækið um brot á lögum. Þrýst er á fólk að skipta yfir í ríkisstyrkta appið Max. WhatsApp sakaði rússnesk stjórnvöld í gær um að reyna að loka að fullu fyrir aðgang Rússa að forritinu. „Það að reyna að hindra aðgengi 100 milljóna notenda að persónulegum og öruggum samskiptum er skref aftur á bak og getur aðeins leitt til þess að dragi úr öryggi fólks í Rússlandi,“ segir í yfirlýsingu WhatsApp á samfélagsmiðlinum X. Talsmaður stjórnvalda í Rússlandi, Dmitry Peskov, var spurður um málið í gær og sagði að verið væri að loka fyrir aðgengi að WhatsApp því fyrirtækið hefði ekki farið eftir lögum í Rússlandi. WhatsApp er í eigu bandaríska fyrirtækisins Meta. Peskov ráðlagði fólki að skipta yfir í Max. Síðan í sumar hafa verið truflanir á aðgengi að WhatsApp og Telegram. Stjórnvöld saka Telegram einnig um að fara ekki að lögum. Rússneski útlægi fjölmiðillinn The Moscow Times greinir frá því að um 60 prósent Rússa noti Telegram. Forritið er bæði notað til að senda skilaboð og sem samfélagsmiðill. Fjöldi fjölmiðla dreifir efni sínu þar. Telegram hefur verið ein fárra leiða fyrir stjórnarandstæðinga sem hafa flúið land til að koma efni sínu á framfæri við almenning í Rússlandi. Stjórnvöld í Rússlandi opnuðu samskiptaappið Max í mars. Það er vettvangur fyrir skilaboð, ýmsa þjónustu ríkisins og fleira og á að vera svar við WhatsApp og Telegram. Sérfræðingar vara við því að Max deili upplýsingum með stjórnvöldum sé þess óskað. Þá séu skilaboð ekki dulkóðuð eins og á WhatsApp. Mannréttindasamtök eins og Amnesty segja takmarkanirnar tilraun til að herða eftirlit með samskiptum. „Eins og venjulega grípa rússnesk stjórnvöld til þeirra verkfæra sem þau hafa til að beita stafrænni kúgun; ritskoðun og hindranir undir því yfirskyni að vernda réttindi og hagsmuni fólks,“ sagði Amnesty í tilkynningu á þriðjudag. Sjötíu milljónir voru komnar með Max í desember, sem er minna en WhatsApp og Telegram sem voru með 94,5 milljónir og 93,6 milljónir notenda. Síðustu ár hefur verið hert að málfrelsi í Rússlandi með ýmsum hætti. Vefsíður fréttastöðvanna TV Rain og Meduza hafa verið fjarlægðar úr lénsnafnakerfi Rússlands. Eins hafa YouTube, Facebook, Instagram og The Moscow Times verið fjarlægðar úr kerfinu. Fólk getur þó nálgast þær, WhatsApp og Telegram sé það með VPN-internettengingu.