Heilbrigðisráðherra segir koma til greina að taka húsnæði til leigu til að létta undir með bráðamóttöku Landspítalans. Meðal þess sem kemur til greina er að flytja starfsemi sjúkrahótels Landspítala svo hægt verði að nýta húsnæðið undir starfsemi spítalans. „Það er verið að skoða hvort sjúkrahótel Landspítala geti verið annars staðar og þá önnur starfsemi í byggingu sjúkrahótels á Landspítalalóðinni,“ segir Alma Möller heilbrigðisráðherra. „Þetta er til skoðunar og ekki tímabært að segja frekar frá því.“ Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans sagði Vísi í gær að til skoðunar væri að leigja hótelrými sem yrði ráðstafað til þeirra sem dvelja á sjúkrahótelum. Þannig yrði unnt að fjölga legurýmum. „Rót vandans er allt of hæg uppbygging hjúkrunarrýma,“ segir Alma. Verið sé að leita allra leiða til að hraða uppbyggingu þeirra og ríkisstjórnin ætli að ráðast í þjóðarátak. Fjármálaráðherra og heilbrigðisráðherra segja enga niðurskurðarkröfu hafa verið gerða á Landspítalann. Heilbrigðisráðherra staðfestir að það sé til skoðunar að leigja húsnæði fyrir starfsemi Landspítalans. Ráðherrar segja ekki niðurskurðarkröfu á spítalanum. „Það hefur ekki verið nein niðurskurðarkrafa á Landspítalann,“ segir Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. „Ég held að þarna sé verið að rugla saman þróun fjárframlaga til spítalans og verkefna hans. Það er enginn eiginlegur niðurskurður.“ Alma segir óvissu um útfærslu á kjarasamningum hafa valdið óvissu um fjárþörf Landspítala. „Það vantar í rekstur Landspítala fyrir þetta ár. Það er ekki niðurskurðarkrafa, það er ekki hægt að segja það. Heldur liggur einfaldlega ekki fyrir hver fjárþörf Landspítala væri.“ „Það skýrist fyrst og fremst af nýjum kjarasamningi lækna. Hann var að miklu leyti óútfærður. Það tók lungann úr árinu 2025 að útfæra samninginn og þar með sjá í gegnum kostnað. Þar var munur á því sem fjármálaráðuneytið áætlaði og spítalinn sjálfur. Þetta er áfram verið að ræða og reikna.“ Alma segir að fjármagn vegna nýrrar matsdeildar á bráðamóttöku Landspítala sé til reiðu. „Heilbrigðisráðuneytið er búið að fullvissa spítalann um að þegar sú matsdeild er tilbúin þá mun ekki standa á fjármagni. Við erum með það tilbúið.“