„Þetta ætti að smella bara eins og flís við rass“

Jóhann Þór Ólafsson stefnir á að stýra toppliði Grindavíkur til sigurs í heimsókninni til Keflavíkur í 17. umferð Bónus deildar karla í körfubolta í kvöld. Þjálfarinn segir nýja/gamla leikstjórnandann Jeremy Pargo eiga eftir að smella við liðið eins og flís við rass.