Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð, segir það ekki hafa verið skýrt að styrkur Vegagerðarinnar við akstur strætisvagns milli Patreksfjarðar, Bíldudals og Tálknafjarðar myndi falla niður við sameiningu sveitarfélaganna. „Nei, það lá ekki fyrir,“ sagði Gerður í Morgunútvarpinu á Rás 2. Vegagerðin hættir akstri milli byggðakjarna í Vesturbyggð 1. mars. Ungmennaráð Vestfjarða lýsti í vikunni áhyggjum af þessu. Farnar hafa verið þrjár ferðir á dag þarna á milli, ein ferð að morgni og tvær eftir hádegi. Gerður segir fólk stóla á þessar ferðir til að sækja þjónustu, heimsækja vini og fara í tómstundir og íþróttir. Sveitarfélagið sé ekki stórt og hafi ekki burði til þess að standa eitt undir akstrinum. „Þannig að þessi styrkur frá Vegagerðinni hefur skipt sköpum. Hann hefur ekkert endilega verið eitthvað sérstaklega stór á mælikvarða Vegagerðarinnar en hann skiptir algjörlega sköpum þannig að hægt sé að halda þessu úti.“ Svo virðist sem það sé túlkunaratriði hvort það sé verkefni sveitarfélaga eða ríkisins að halda úti almenningssamgöngum á landsbyggðinni. „Það virðist vera þannig að Vegagerðin túlkar þetta mjög þröngt og vísar þarna í stefnu stjórnvalda sem var gefin út 2019. Þar er lína sem segir að sveitarfélögin eigi að sinna samgöngum innan sveitarfélags, en á mörgum öðrum stöðum í stefnu stjórnvalda, bæði í þessari sömu stefnu og samgönguáætlun og þessari framlögðu samgönguáætlun sem liggur fyrir núna, segir að þetta sé á ábyrgð Vegagerðarinnar.“ Gerður segir að svo virðist sem aksturinn sé álitinn innanbæjarsamgöngur. Á milli bæjanna þriggja í Vesturbyggð eru fjallvegir og heiðar sem geta orðið illfærar. „Þetta eru erfiðir fjallvegir og ekki fyrir alla að aka að vetri til og allt annað en innanbæjarsamgöngur.“ „Það eru engar almenningssamgöngur á Vestfjörðum, þegar kemur að rútuferðum á milli Norður- og Suðursvæðis Vestfjarða eða tengingar til dæmis á Snæfellsnes, Baldur eða til Reykjavíkur. Það eru engar rútur sem ganga hérna á milli. Þannig að það er ekki eins og Vegagerðin sé að nýta fjármagnið í aðrar almenningssamgöngur á Vestfjörðum,“ segir Gerður. Áfram verði reynt að tryggja nægt fjármagn í þessar samgöngur og að ábyrgð færist ekki yfir á sveitarfélög með sameiningu. „Mér finnst skipta gríðarlega miklu máli að í nýrri samgönguáætlun sé alveg skýrt hver stefna stjórnvalda er varðandi almenningssamgöngur innan sameinaðra sveitarfélaga. Að það sé ekki forsendubreyting ef sveitarfélög sameinast. Að ábyrgð samgangna færist þá yfir á sveitarfélögin. Það má ekki vera þannig. Eins skiptir líka máli að það sé tryggt fjármagn til þess að halda úti almenningssamgöngum á landsbyggðinni. Það skiptir ekki síður máli að það sé haldið úti almenningssamgöngum á landsbyggðinni heldur en á höfuðborgarsvæðinu. Fólk í dag vill eðlilega komast á milli og þetta er bara hluti af því.“ Sveitarstjórinn í Vesturbyggð segir það ekki hafa legið skýrt fyrir að styrkur frá Vegagerðinni til almenningssamgangna milli Patreksfjarðar, Tálknafjarðar og Bíldudals myndi falla niður við sameiningu sveitarfélaganna.