Mikil svifryksmengun á höfuðborgarsvæðinu

Gróft svifryk mælist í miklu magni víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu og eru gildi á nokkrum stöðum óholl fyrir viðkvæma, samkvæmt upplýsingum á vef Umhverfis- og orkustofnunar, Loftgæði.is. Viðkvæmir einstaklingar og fólk með astma eða aðra undirliggjandi lungna- eða hjartasjúkdóma geta þá fundið fyrir einkennum vegna loftmengunar. Gildi í Breiðholti og við Háaleiti í Reykjavík eru rauð, sem merkir að þau séu óholl. Það þýðir að loftmengun sé mikil og er fólki ráðlagt að forðast að vinna erfiðisvinnu eða stunda líkamsrækt utandyra. Einstaklingar með alvarlega hjarta- eða lungnasjúkdóma að forðast að vera úti á þeim stöðum. Loftgæði mælast óholl fyrir viðkvæma og óholl víða á höfuðborgarsvæðinu.Skjáskot / Loftgæði.is