Yfir 50 með stöðu sakborning í stóru fjársvikamáli

Yfir 50 manns eru með stöðu sakbornings í stóru fjársvikamáli, þar sem fimm eru grunaðir um að hafa komist yfir hundruð milljóna úr Landsbankanum vegna kerfisgalla hjá Reiknistofu bankana seint á síðasta ári. Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari segir að þeim sem eigi eftir að fá stöðu sakbornings eigi eftir að fjölga. Lögregla handtók fimm manns í tengslum við rannsóknina en héraðssaksóknari tók yfir rannsókn þess. Embættinu er falið að rannsaka umfangsmikil fjársvikamál. Fjárglæframennirnir meintu eru grunaðir um að hafa nýtt sér kerfisgalla hjá Reiknistofu bankanna til að svíkja um 400 milljónir út úr Landsbankanum, auk þess sem þeir sviku um tíu milljónir króna út úr Arion banka. Ólafur Þór segir málið enn í rannsókn en það sé umfangsmikið. Fyrst og fremst sé verið að rekja fjárfærslur og halda áfram með skýrslutökur. „Peningarnir fóru víða, meðal annars erlendis.“ Hann segir ástæðu þess að fjöldi sakborninga sé svo mikill vera þá að til viðbótar við þá sjö sem höfðu stöðu sakbornings til að byrja með bættust við þeir sem tóku við greiðslum.