Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, ætlar ekki að gefa kost á sér í val á varaformanni Framsóknarflokksins. Hann greindi frá þessu í Facebook-færslu . Flokksþing Framsóknar verður um helgina. „Eftir vandlega ígrundun finn ég í hjarta mínu að mitt meginverkefni á þessum tímapunkti er að halda áfram að byggja upp starf flokksins okkar hér í Hafnarfirði. Sveitarstjórnarkosningar eru fram undan og hugur minn og einbeiting þurfa að vera þar,“ segir Valdimar. Valdimar Víðisson.RÚV / Ragnar Visage Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi, hefur gefið kost á sér til varaformanns.