Dómstóll í London kvað upp þann dóm í dag að það hafi verið ólöglegt af stjórnvöldum að skilgreina samtökin Palestine Action sem hryðjuverkahóp. Einn af stofnendum hópsins, Huda Ammori, lýsir úrskurðinum sem mikilvægum sigri fyrir grundvallarfrelsi í Bretlandi og fyrir baráttuna fyrir frelsi Palestínumanna, að því er fram kemur í frétt Al Jazeera . Stjórnvöld ætla að áfrýja úrskurðinum og verður bann á starfsemi samtakanna í gildi þar til eftir að niðurstaða liggur fyrir í áfrýjunarmálinu. Því er áfram ólöglegt að vera hluti af samtökunum eða að styðja þau. Lögreglan í London hefur þó gefið til kynna að ólíklegt sé að fólk verði handtekið fyrir að sýna stuðning sinn við samtökin. Ammori sagði í yfirlýsingu í dag að áfrýjunin væri ranglát. Þúsundir mótmælenda hafi verið handteknir á mótmælum Palestine Action, margir þeirra eldri borgarar, sem ættu yfir höfði sér allt að 14 ára dóm. Vegna áfrýjunarinnar verði þeir áfram í lausu lofti. Stjórnvöld í Bretlandi lýstu því yfir í sumar að starfsemi Palestine Action yrði bönnuð með vísan til laga gegn hryðjuverkum. Þar með fóru samtökin í sama hóp og al-Kaída og Íslamska ríkið. Tilkynnt var um bannið stuttu eftir að samtökin lýstu yfir ábyrgð á innbroti í herstöð breska flughersins í Oxfordskíri þar sem aðgerðasinnar úðuðu rauðri málningu á herflugvélar. Breski fjölmiðillinn The Guardian hefur eftir Defend Our Juries , samtökum sem hafa skipulagt mótmæli gegn banninu, að 2.787 manns hafi verið handteknir á grundvelli hryðjuverkalaga síðan 5. júlí. Flestir hafi ýmist haldið á mótmælaspjöldum eða klæðst stuttermabolum með slagorðum til stuðnings baráttumálum Palestine Action. Yfir 500 hafa verið kærðir.