Vonar að frumvarp um rannsóknarnefnd vegna Bakkakots komi fram á vorþingi

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra vonast til þess að frumvarp um stofnun rannsóknarnefndar í tengslum við Bakkakotsmálið verði lagt fram á núverandi þingi. Málefni þeirra sem dvöldu á Bakkakoti og segjast hafa verið beitt ofbeldi þar voru rædd á fundi ríkisstjórnarinnar í dag. „Það er mjög líklegt að það þurfi að koma til lagasetning vegna slíkrar rannsóknar og við erum að upplýsa ríkisstjórnina um það,“ sagði Kristrún eftir ríkisstjórnarfund í dag. Hún telur mikilvægt að frumvarpið líti dagsins ljós sem allra fyrst. „Vonandi á þessu vorþingi ef það er sátt um það í þinginu,“ segir hún. Þær lagabreytingar þarf að sögn Kristrúnar snúa að stofnun rannsóknarnefndarinnar sem tæki að sér að skoða málið. Þá þurfi einnig að afmarka umfang rannsóknarinnar. „Þetta eru viðkvæmar upplýsingar, við viljum bara vera með ákveðið öryggi í því þegar farið er inn í slíkt mál að við séum með allar eðlilegar heimildir,“ segir hún. Sálfræði- og áfallaþjónusta kynnt í næstu viku Þá segir Kristrún að kynntar verði aðgerðir ríkisstjórnarinnar í tengslum við sálfræði- og áfallameðferð handa þeim sem dvöldu á Bakkakoti í næstu viku. „Við höfum núna í forsætisráðuneytinu og nokkrum öðrum ráðuneytum verið að kortleggja þessa vinnu og erum í rauninni bara að upplýsa ríkisstjórnina um það hvernig hún gengur,“ sagði Kristrún eftir fund ríkisstjórnarinnar í dag. Kristrún segist þó vilja ítreka að ekki sé hægt að horfa einungis aftur í tímann og að nauðsynlegt sé einnig að sýna ábyrgð gagnvart núverandi fósturkerfi. Hún segir mennta- og barnamálaráðuneytið með aðgerðir í farvatninu hvað það varði. Von á frumvarp um sanngirnisbætur í haust Kristrún vonast hún til þess að frumvarp um sanngirnisbætur handa þeim og vöggustofubörnum verði lagt fram í haust. Hvatning hefur borist frá vöggustofubörnum til stjórnvalda og forsætisráðherra um að lagt verði fram frumvarp sem tryggja myndi sanngirnisbætur úr ríkissjóði. „Ég held að það sé mjög eðlilegt að við leggjum fram núna í haust sanngirnisbótafrumvarp sem er almenns eðlis og býður upp á að það sé tekið á þessum málum með heildrænum hætti og þetta er það sem er verið að vinna,“ segir hún. Kristrún segir að slíkt frumvarp hafi verið lagt fram á sínum tíma en það hafi ekki náð fram að ganga. „Við þurfum aðeins að eiga við það, við þurfum að rifja upp þessa vinnu en við stefnum að því að leggja fram núna í haust,“ segir hún.