„Við eigum von á að f yrirtæki hafi hraðað verðhækkunum og gengið á lagið eins og þau gátu í skjóli verðhækkana sem leiddu af opinberum gjaldabreytingum, en reyni í kjölfarið að halda aftur af frekari hækkun.“ Þetta segir Hafsteinn Hauksson, aðalhagfræðingur Kviku, í verðbólguspá markaðsviðskipta Kviku sem hann sendi viðskiptavinum bankans í dag. Þar er spáð 5,0 prósenta verðbólgu í febrúar. Það er 0,2 prósentustigum minna en í janúar. Bráðabirgðaspá Kviku hljómar upp á að janúar hafi markað tímabundið hágildi verðbólgunnar og að hún fari hjaðnandi næstu mánuði. Það gæti gerst á sama tíma og þungar mælingar á fyrri hluta síðasta árs detti út úr tólf mánaða samanburði. Gangi það eftir þokast verðbólga í átt að 4,6 prósentum í maí. „Nokkur óvissa ríkir um verðbólguþrýsting í hagkerfinu eftir þunga janúarmælingu. Við göngum út frá því að víðtækar verðhækkanir í janúar hafi mátt rekja til þess að fyrirtæki reyndu að verja framlegð í kjölfar kjarasamningsbundinna launahækkana og gengu á lagið í skjóli gjaldahækkana hins opinbera.“ Verðhliðrunin ætti því að vera komin fram að mestu auk þess sem vaxandi líkur séu á því að neytendur haldi að sér höndum andspænis verðhækkunum á sama tíma og hægt hefur á launahækkunum, atvinnuleysi eykst hröðum skrefum og raunverð fasteigna lækkar. „Heilt yfir eigum við því von á að verðhækkanir verði umfangsminni en ella næstu mánuði , en merki um áframhaldandi verðþrýsting myndu valda okkur verulegum áhyggjum,“ segir Hafsteinn og lýsir þeirri von að hækkanir ýmissa verðflokka hafi færst fram í tímann og því „verði febrúarmælingin til friðs“. Næsti vaxtaákvörðunardagur Seðlabankans er 18. mars. Hafsteinn á ekki von á vaxtalækkun þá. „Við teljum þó að sú hjöðnun sem hér er spáð komist ekki nálægt því að sefa áhyggjur nefndarinnar nægilega til að hún treysti sér í vaxtalækkun í mars.“