Triskaidekaphobia kann að hafa gripið um sig í dag – óttinn við töluna 13

Í dag er föstudagurinn þrettándi og líklega hafa margir farið sérstaklega gætilega þess vegna. Margs konar hjátrú fylgir tölunni þrettán og ekki síður þegar svo ber til að föstudagur er 13. dagur mánaðar. Afþreyingariðnaður nútímans hefur nýtt dagsetninguna til að hræða fólk um áratugaskeið. Þekktastur er sennilega sagnabálkurinn um hinn grímuklædda Jason sem hrellt hefur unglingssálir síðan í kringum 1980. Allir dagar vikunnar eru jafnlíklegir til að verða þrettándi dagur mánaðar, það gerist á föstudegi að meðaltali 171 sinni á öld, samkvæmt færslu Þorsteins Vilhjálmssonar heitins, prófessor emeritus í eðlisfræði á Vísindavefnum. Það er upp undir tvisvar á ári að meðaltali. Svo vill til að 13. dagur mars ber einnig upp á föstudag. Meinta ógæfu þessarar dagsetningar má líkt og margt annað rekja til trúarbragða og munnmælasagna. Til dæmis var svikapostulinn Júdas sá þrettándi til að setjast niður með Jesúm við síðustu kvöldmáltíðina og bragðarefurinn Loki var þrettándi gestur í kvöldveislu í Valhöll sem lyktaði með því að Höður hinn blindi banaði Baldri með mistilteini og reyndist æsum harmdauði hinn mesti. Fleiri skýringar eru til. Þá er einnig þekkt að Filippus IV. Frakkakonungur lét handtaka hundruð musterisriddara samtímis á föstudeginum 13. október 1307 og í kjölfarið lífláta þá. Margir láta óttann við töluna þrettán stjórna sér og triskaidekaphobia, eða óttinn við töluna 13, er viðurkenndur kvilli sem plagar fjölda fólks. Vitað er um hótel sem telja þrettándu hæðina ekki með og dæmi eru um að fólk mæti ekki í vinnu til öryggis, þótt stærðfræðingar og aðrir vísindamenn segi ekkert benda til að fleiri óhöpp verði þennan dag en aðra, en fólk taki mögulega betur eftir þeim.