Jón Dagur skoraði beint úr auka­spyrnu í fyrsta leik sínum með Brann

Íslenski landsliðsmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson var á skotskónum og skoraði tvö af mörkum Brann í 6-1 sigri í æfingarleik gegn Odd á Marbella í dag. Þetta var fyrsti leikur Jóns Dags fyrir Brann.