Merz segir heimsskipan síðustu ára undir skemmdum

Kanslari Þýskalands segir að sú heimsskipan sem hafi verið við lýði síðustu áratugi liggi undir skemmdum. Alþjóðleg öryggisráðstefna hófst í München í Þýskalandi í dag. Hann segir að frelsinu sé ógnað á tímum stórvelda. Slagorð öryggisráðstefnunnar í ár er: í eyðingu. Merz kanslari Þýskalands segir þetta slagorð þýða að sú heimsskipan sem lög og reglur byggist á, liggi undir skemmdum. Þessi heimsskipan hafi þó ekki verið fullkomin jafnvel þegar sem best gekk. Hún sé ekki í gildi lengur. Kanslarinn segir ljóst að á tímum stórvelda sé frelsið ekki lengur gefið, heldur sé því ógnað. Það þurfi viljastyrk til að öðlast það aftur. Merz kvaðst á ráðstefnunni vera reiðubúinn til viðræðna við ráðamenn í Rússlandi. Hann sagðist þó telja að Rússar væru ekki reiðubúnir til að hefja viðræður um frið við Úkraínu. Þjóðarleiðtogar og áhrifamenn víðs vegar úr heiminum sækja ráðstefnuna í München sem í ár er haldin í skugga versnandi samskipta Evrópu og Bandaríkjanna. Henni lýkur á sunnudag. Kanslarinn var spurður um hugmyndir Frakklandsforseta um að leiðtogar Evrópuríkja myndu ræða beint við Pútín en lítið hefur verið um slík samskipti síðan Rússlandsher hóf allsherjarinnrás í Úkraínu 2022. Merz sagði að viðræður við stjórnvöld í Rússlandi gætu verið skynsamlegar sem hluti af viðleitni; hernaðarlegri, stjórnmálalegri og diplómatískri, til að fá Rússa að samningaborðinu. Hann sagði að stríðinu myndi ekki ljúka fyrr en Rússar yrðu fjárhagslega og hugsanlega hernaðarlega örmagna. Sá tími nálgast, að mati kanslarans.