Suðurkóreska leyniþjónustan segir að Kim Jong Un, leiðtogi Norður-Kóreu, ætli á næstunni að útnefna eftirmann sinn í embætti. Lengi hefur þótt líklegt að Kim Ju Ae, dóttir leiðtogans, verði formlega útnefnd, en leyniþjónustan tilkynnti nýverið að hún hefði vissu um að það stæði til á næstunni. Mögulega verði það gert á flokksþingi kommúnistaflokks landsins síðar í þessum mánuði. Ju Ae er talin vera annað barn Kim Jong Un og eiginkonu hans Ri Sol Ju. Hin börn þeirra tvö hafa aldrei sést opinberlega. Ekki er vitað hvað Ju Ae er gömul, líklega á bilinu tólf til fjórtán ára. Suðurkóreska leyniþjónustan telur sig vita að hún hafi þegar fengið leiðtogaþjálfun og sé stundum leyft að hafa skoðanir á stjórn ríkisins. Nýlega voru fluttar fréttir af heimsókn Kim-fjölskyldunnar í Kumsusan-hofið í höfuðborginni Pyongyang, einn helgasta stað landsins. Þar hvíla Kim il Sung og Kim Jong Il, langafi og afi Kim Ju Ae, fyrrverandi leiðtogar landsins. Sérfræðingar í málefnum Norður-Kóreu töldu tilgang þeirrar heimsóknar vera að kynna „eilífu leiðtogunum“ tveimur um þá ákvörðun að Kim Ju Ae tæki við að föður hennar liðnum. Kim Ju Ae skyti þannig föðursystur sinni, Kim Yo Yong, sem er yngst barna Kim il Sungs og var lengi talin mögulegur arftaki bróður síns. Það var áður en Ju Ae fór að birtast opinberlega við hlið föður síns fyrir um tveimur árum síðan. Hún hefur reglulega sést á hersýningum, við opnun almenningsgarða og jafnvel í heimsókn föður síns til Beijing í Kína, á fund forseta landsins. Kim Jong Un er 42 eða 43 ára og hefur verið við völd síðan 2011. Kim Jong Il, faðir hans, var sjötugur þegar hann féll frá og afi hans, Kim il Sung, var ríflega áttræður þegar hann lést.