Sjáðu: Ástralinn vann eftir æsispennandi snjóbrettaat

Hin ástralska Josie Baff stóð uppi með gullmedalíu eftir æsispennandi keppni í snjóbrettaati kvenna. Þar renna fjórir keppendur sér niður á sama tíma niður brekku. Í snjóbrettaati reynir mikið á tímasetningar og að ná öllum stökkum fullkomlega. Það gekk upp hjá Baff sem vann sínu fyrstu verðlaun á Ólympíuleikum í dag. Tékkinn Eva Adamczykova var aðeins fjórum sekúndubrotum á eftir henni og tók silfur. Heimakonan Michela Moili tók brons. Ástralía á Vetrarólympíuleikum? Þrátt fyrir að veðurfarið í Ástralíu sé ekki beint tilvalið fyrir vetraríþróttir er rík hefð fyrir Áströlum á Vetrarólympíuleikum. Alls hefur Ástralía unnið 23 medalíur og þar af eru báðar medalíurnar í ár gullmedalíur. Fyrsta medalían kom árið 1994 og fyrsta gullmedalían árið 2002. Ástralir þykja nokkuð framarlega í skíðafimi og snjóbrettum. Meiri hluti íþróttafólksins stundar sitt fag í fjöllum Evrópu, Norður-Ameríku og Japan. En þó er fjallasvæði við Mount Buller í Viktoríu fylki þar sem einhver aðstaða er til staðar. Þá er einnig sérstakt Vetrarólympíuleikasetur í Brisbane þar sem íþróttafólk getur keppt allt árið án snjós. Klæbo safnar gullum í safnið - Dagur í 69. sæti Dagur Benediktsson varð í 69. sæti í 10 km skíðagöngu karla á Vetrarólympíuleikunum í dag. Norðmaðurinn Johannes Høsflot Klæbo fékk gull, sín þriðju á leikunum og þau áttundu í heildina. Dagur byrjaði frekar hægt og var í 81. sæti að 1,8 km loknum. Hann var þó búinn að vinna sig upp í 70. sæti strax á næsta tímatökusvæði við 3,7 km. Hann komst upp í 69. sæti á næsta svæði en var svo í 70. það sem eftir var af keppni og lauk henni einnig þar. Spánverjinn Bernat Selles Gasch var dæmdur úr keppni fyrir að ganga ekki rétta leið og Dagur endaði því í 69 sæti. Dagur keppir í sinni síðustu grein, 50 km göngu, laugardaginn 21. febrúar. Frakkinn fremstur Í sprettgöngu karla í skíðaskotfimi er einn keppandi ræstur í einu. Þar þarf að ná blöndu hraðrar göngu og mikillar hittni. Frakkinn Quentin Fillon-Maillet, silfurverðlaunahafi síðustu leika, reyndist fremstur meðal jafningja. Hann tók gull en Norðmenn röðuðu sér í næstu sæti. Vetle Sjaastad Christiansen tók silfur og Sturla Holm Lægreid tók brons. Sturla Holm komst í heimsfréttirnar eftir síðustu bronsverðlaun þar sem hann opinberaði framhjáhald sitt í viðtali. Í þetta sinn lét hann það vera. Hér má sjá tilþrif Fillon-Maillet í sprettgöngunni og lokasprettinn í snjóbrettaati kvenna. Hin ástralska Josie Baff vann gull í snjóbrettaati kvenna á Vetrarólympíuleikunum í dag. Þá var Frakkinn Fillon-Maillet fremstur meðal jafningja í sprettgöngu karla í skíðaskotfimi. Hér má sjá alla keppnina í snjóbrettaati kvenna. Hin ástralska Josie Baff vann gull í snjóbrettaati kvenna á Vetrarólympíuleikunum í dag. Þá var Frakkinn Fillon-Maillet fremstur meðal jafningja í sprettgöngu karla í skíðaskotfimi. Staðan í medalíukeppni Í medalíukeppni er iðulega miðað við fjölda gullverðlauna en Noregur og Ítalía eru jöfn í heildarfjölda verðlauna. Noregur - 8 gull - 3 silfur - 7 brons - 18 alls Ítalía - 6 gull - 3 silfur - 9 brons - 18 alls Bandaríkin - 4 gull - 7 silfur - 3 brons - 14 alls Frakkland - 4 gull - 5 silfur - 1 brons - 10 alls Þýskaland - 4 gull - 3 silfur - 2 brons - 9 alls Svíþjóð - 4 gull - 3 silfur - 1 brons - 8 alls Sviss - 4 gull - 1 silfur - 2 brons - 7 alls Jón Erik stígur á stokk á morgun Íslensku keppendurnir í alpagreinum hefja keppni á morgun þegar keppt er í stórsvigi karla. Þar þreytir Jón Erik Sigurðsson frumraun sína í keppni á Ólympíuleikum. Fyrri ferð er á RÚV klukkan 08:50 og seinni ferð er klukkan 12:20.