Eitrað bræðra­lag – hver tapar og hver græðir?

Verðbólga, verðtrygging og stýrivextir hafa myndað eitrað bræðralag í Íslensku efnahagslífi. Þetta er verðhækkunarmaskína sem malar stöðugt: verð hækkar, vextir hækka, verðtrygging hækkar, höfuðstólar verðtryggðra lána blása út og almenningur borgar.