Trump sendir annað herskip til Mið-Austurlanda

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sent flugmóðurskipið Gerald R. Ford frá Karíbahafinu til Mið-Austurlanda til að auka enn frekar þrýsting á stjórnvöld í Íran til að skrifa undir nýja kjarnorkusamninga. Bandaríkin og Íran áttu óbeina samningafundi í Óman í síðustu viku. Sérstök sendinefnd Bandaríkjanna með Steve Witkoff og Jared Kushner í broddi fylkingar fundar með samninganefnd Íran í Genf á þriðjudaginn kemur. Fulltrúar frá Óman leiða viðræðurnar, samkvæmt Norska ríkisútvarpinu. Bandaríkjaforseti sagði í gær að stjórnarskipti í Íran væru það besta sem gæti gerst, í viðtali við fréttamenn þegar hann heimsótti herstöð í Norður-Karólínu í gær. Hann neitaði þó að segja hvern hann vildi sjá stjórna í landinu. Það tekur Gerald R. Ford flugmóðurskipið um þrjár vikur að sigla til Mið-Austurlanda. „Ef við náum ekki samningi, þá munum við þurfa að nota það“, sagði Trump.