Rétt tæp fjögur ár eru liðin frá því Rússar hófu allsherjarinnrásina í Úkraínu, eftir margra ára átök milli ríkjanna og tengdra sveita í austurhluta landsins. Harðir bardagar geysa víða í Úkraínu og er mannfall sagt mikið. Rússar hafa þó náð tiltölulega litlum árangri í landvinningum sínum og leggja mikla áherslu á árásir á borgaralega innviði.