Bandaríkjamaðurinn Maxim Naumov átti tilfinningaþrungna stund þegar skor hans var tilkynnt á frjálsum æfingu karla á listskautum í gær. Foreldrar Naumov féllu báðir frá í flugslysi fyrir meira en ári síðan í Bandaríkjunum. Naumov hefur haft þann sið að halda uppi mynd úr barnæsku sinni þegar dómarar tilkynna skor hans. Á myndinni sést hann ungur með foreldrum sínum. Vadim Naumov og Evgenia Shishkova urðu heimsmeistarar sem par í listkautum fyrir Rússland árið 1994. Alls fórust 28 foreldrar, þjálfarar og íþróttamenn tengdir bandarískum listskautum í vélinni. Þetta var flugvélin sem klessti á þyrlu í Washington í janúar 2025. Naumov er sagður hafa tjáð foreldrum sínum að draumur hans væri að komast í bandaríska landsliðið áður en þau féllu frá. Hann náði því markmiði og keppti fyrir Bandaríkin á sínum fyrstu Vetrarólympíuleikum í ár. Hann var bronsverðlaunahafi á bandaríska meistaramótinu nýverið. Naumov endaði að lokum í 20. sæti í frjálsum æfingum en Mikhail Shaidorov frá Kasakstan stóð óvænt uppi sem sigurvegari.