Verulega kalt var á landinu í nótt og fór frost víða í tveggja stafa tölur bæði norðan- og sunnan heiða. Það bætir í vind í dag frá því sem var í gær og verður áttin austlæg. Vindhraði verður víða á bilinu 5 til 13 metrar á sekúndu. Syðst á landinu má þó búast við meiri vindhraða eða 13 til 18 metrum á sekúndu. Gera má ráð fyrir lítilsháttar éljum austantil. Þurrt annars staðar að mestu. Á morgun snýst vindátt í norður og norðaustanátt og verður vindhraði 5 til 13 metrar á sekúndu. Frost verður á bilinu 2 til 15 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan. Ljósavatn í Þingeyjarsveit í vetrarbúning.Rúv / Kristófer Óli Birkisson