Aldraðir fluttir af Landspítala á Suðurnesin

Á annan tug aldraðra hafa verið fluttir af Landspítala á Suðurnesin til að losa um legurými á spítalanum. Enn er til skoðunar að tvímenna í einstaklingsherbergi á hjúkrunarheimilum. Aldraðir eru færðir af Landspítala á sjúkrahúsið á Suðurnesjum til að rýmka á spítalanum. Heilbrigðisráðherra segir spítalann þurfa meira fé og skoðar að leigja húsnæði. Til greina kemur að flytja sjúklinga, sem hafa lokið meðferð á Landspítala og bíða eftir að komast á hjúkrunarheimili, á sjúkrahótel. Og því yrði svo fundinn annar staður í leiguhúsnæði. Ýmislegt á teikniborði ráðherra Þetta var rætt á ríkisstjórnarfundi í morgun þar sem staða bráðamóttöku var á dagskrá - en óvíst er hvaða húsnæði verður fyrir valinu. „Það er auðvitað ekki hægt að taka hvaða húsnæði sem er og reka þar heilbrigðisþjónustu,“ segir Alma Möller heilbrigðisráðherra. Aðrar tillögur sem ráðherra kynnti til lausnar vanda bráðamóttöku eru efling heimaþjónustu og að samþætta félagsþjónustu og heimahjúkrun. Áætlað er að 4-5 milljarða vanti í rekstur Landspítala í ár - en við gerð fjárlaga lá ekki fyrir hver fjárþörfin væri sem skýrist fyrst og fremst af kjarasamningi lækna sem tók ár að útfæra. „Þar var munur á því hvað fjármálaráðuneytið áætlaði og spítalinn sjálfur,“ segir Alma. Spurð hvort spítalinn fái meira fé í ár svarar Alma: „Hann fær fyrir matsdeildinni,“ og þar á ráðherra við 20 rúma deild sem opna á við bráðamóttökuna í sumar. „Og síðan finnst mér sem heilbrigðisráðherra engin spurning að bæta kjarasamninga. En það á enn eftir að ákveða hver sú upphæð er.“ 15 hafa verið fluttir á heilbrigðisstofnun Suðurnesja En það þarf að leysa vanda bráðamóttöku hér og nú - hvað er hægt að flytja marga af Landspítala í dag annað? „Það er kannski ekki í dag. En á næstu dögum eru allavegana 17.“ Hvað hefur ráðuneytið gert til að koma fólki af spítalanum núna í vikunni? „Það er verið að ræða við hjúkrunarheimilin og fjölga þar plássum. Síðan eru kragasjúkrahúsin að hjálpa til, ekki síst heilbrigðisstofnun Suðurnesja og þangað var fjöldi sjúklinga fluttur.“ Samkvæmt upplýsingum fréttastofu hafa samtals 15 sjúklingar, sem höfðu lokið meðferð á Landspítala, verið fluttir á Suðurnesin það sem af er þessu ári, þar af tveir í þessari viku. Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala hefur sagt að flytja þurfi allt að 70 af spítalanum til að bráðamóttaka geti starfað eðlilega. Og það er enn til skoðunar að tvímennt verði í einstaklingsherbergi á hjúkrunarheimilum. „Það er vissulega ekki alveg búið að skjóta loku fyrir það.“