Þegar spurt er hvaða flugvélar hafa markað dýpst spor í flugsögu Íslands nefna sumir þristinn eða Boeing 757-þotuna. En það heyrast einnig raddir sem segja litla Cessnu 180 skipa stóran sess og safnstjóri Flugsafnsins á Akureyri segir vél af þeirri gerð merkasta dýrgrip safnsins.