Her­þotur frá Sví­þjóð, Dan­mörku og Þýska­landi á Ís­landi

Danskir flugmenn flugu í gær fjórum F-35 herþotum hingað til lands og var þotunum lent í Keflavík. Flugmennirnir munu standa í æfingum með sænsku flugsveitinni sem sinnir loftrýmisgæslu hér á landi, auk þess sem þýskar herþotur verða hér einnig.